Samþættingar
Við hjá TACTICA teljum okkur vera leiðandi þegar kemur að samþættingarlausnum milli vefverslana og bókhaldskerfa. Við höfum undanfarin 5 ár þróað hugbúnaðarlausn sem við köllum Integrator sem bæði einfaldar og gerir alla vöruumsýslu í vefverslun skilvirkari.
Integrator
Integrator er millilag sem tengir saman gögn til birtingar á vefnum. Í dag eigum við tilbúnar tengingar á milli WordPress (Woocommerce), Joomla, DK, Navision og Shopify og lítið mál er að bæta við tengingum og sérlausnum fyrir þau kerfi sem ekki eru tengd nú þegar.
Með tengingu á milli kerfanna getum við samþætt t.d. birgðastöðu, verð, eigindi og vöruflokka.
Pantanir úr vefverslun er hægt að láta stofnast sjálfkrafa sem reikninga í bókhaldskerfinu.
En tengingin sjálf milli vefverslunar og bókhaldskerfis er bara hluti af lausninni, þó svo tenging sé komin á milli kerfanna þarf yfirleitt að "snyrta" vöruna fyrir birtingu í vefverslun, því við fáum t.d. ekki vörulýsinguna né spekkana formatteraða beint úr bókhaldskerfinu og oft er óþjált að geyma og samþætta myndir úr bókhaldskerfinu og því fer myndaumsýslan fram í Integrator.
Reykjafell
Hjá Tactica get ég treyst að ég fæ lausnina sem ég er að biðja um afhenta upp á skilvirkan og hagkvæman máta. Þær fjárfestingar sem mitt fyrirtæki hefur treyst Tactica fyrir hefur verið skilað með þeirri útkomu sem ætlast var til og engir lausir endar.
Verkefnastjórnun og aðgengi að fagmönnum með því besta sem ég hef kynnst á meðal UT fólks á Íslandi. Integrator lausnin sem Tactica innleiddi hjá okkur var nákvæmlega það sem við þurftum til að komast upp á næsta level í utanumhaldi og miðlun á okkar gögnum út á vefsíðuna okkar reykjafell.is
Dæmi um fyrirtæki sem nota Integrator
Kringlan
Það er engum ofsögum sagt að við hjá Parallel ráðgjöf leituðum til vel flestra aðila, bæði hér heima og erlendis, í leit að samþættingarlausn fyrir vörugrunna. Integrator lausn Tactica kom best út á endanum.
Eftir innleiðingarferlið er okkur ljóst að lausnin er ekki bara hentug, heldur er hún rekin af reynslumiklu teymi sem þekkir allar hindranir sem geta komið upp í flóknum samþættingarverkefnum.
Ég gef TACTICA einlæg bestu meðmæli. Kringluverkefnið sem er sér á báti á heimsvísu hefði líklega ekki gengið upp án þeirra.
Vöruumsýsluviðmót (valkvætt)
Til að stíga skrefið til fulls höfum við þróað vöruumsýsluviðmót ofan á millilagið þar sem höfuðáhersla er lögð á einfaldleika og hraða vinnslu með vörur.
Markmiðið með viðmótinu er að þar fari öll vinnsla fram sem snýr að vörunum og notendur þurfi þ.a.l. ekki að vinna í stjórnborði vefverslunarkerfisins.
Hvaða vinnsla fer fram í vöruumsýsluviðmótinu?
Eftirfarandi eru nokkrar af algengum aðgerðum sem hægt að framkvæma í Integrator viðmótinu
- Leiftursnögg leit í vörum eftir heiti eða vörunúmeri, einnig hægt að sía eftir vöruflokkum eða í hvaða stöðu vara er o.fl.
- Bæta við eða breyta myndum á vöru, hægt að croppa myndir t.d. Einnig er hægt að sækja myndir með því að setja inn vefslóð og sækir þá kerfið myndina og setur hana inn (linkar ekki í hana).
- Þægilegt að setja inn spekka fyrir vörur, ekkert töfluvesen.
- Custom Fields, þarfir og vörur fyrirtækja eru mismunandi sem oft kallar á ólíkar framsetningar á vörum í vefverslun. Hægt er að mæta þeim þörfum með svokölluðum sérreitum (custom fields).
- Hægt er að setja reglur um innsetningu vara, t.d. er hægt að skilgreina lágmarkslengd vörulýsingar, lágmarks- og hámarksstærð mynda eða lágmarks- og hámarks fjölda mynda.
- Skýr yfirsýn yfir hversu tilbúnar vörur eru fyrir birtingu (Product Readiness) og því einfalt að finna allar vörur sem falla ekki undir þá skilgreiningu að vera tilbúnar.
- Margt, margt fleira :)
Hafðu endilega samband og bókaðu kynningu hjá okkur.