Persónuvernd
Tactica (hér eftir nefnt “fyrirtækið”) er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu þessari kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn.
Markmiðið með þessari yfirlýsingu um persónuvernd er að gefa þér skýra mynd af því hvernig við notum persónuupplýsingar sem þú veitir, áherslu okkar á vernd upplýsinganna og réttindum þínum, og valkostum að því er varðar að hafa stjórn á og vernd á persónuupplýsingum þínum.
Einnig er hér gerð grein fyrir því hvaða persónuupplýsingum við söfnum um þig þegar þú ferð inn á vefsíður okkar (www.tactica.is, www.hysingar.is, og www.integrator.is), auk þess hvernig við förum með persónuupplýsingarnar þínar.
Allar persónuupplýsingar eru geymdar á öruggum netþjóni. Við kunnum að breyta þessari persónuverndarstefnu, þ.m.t. að gera efnislegar breytingar í tengslum við vafrakökur (e. cookies) sem við notum.
Ábyrgð
Tactica ehf. Kt. 650400-2160, vinnur með eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem fyrirtækið safnar ýmist í sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Fyrirtækið hefur aðsetur að Fjarðargötu 15, 220 Hafnarfirði, og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er að senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið [email protected]
Í persónuverndarstefnu þessari er vísað til gildandi íslenskra laga um persónuvernd og almennrar persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins („GDPR“) eða hvers kyns síðari löggjafar, eða löggjafar sem kemur í stað ofangreindra laga og/eða reglugerðar.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera kleift að persónugreina hann. Ekki er átt við nafnlaus gögn, en það eru upplýsingar sem persónugreinandi gögn hafa verið fjarlægð úr.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Tactica safnar upplýsingum um starfsmenn, viðskiptavini og birgja sem fyrirtækinu er skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga og samþykki hins skráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila.
Tactica safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum, og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Tactica safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er líklegt að Tactica geti ekki veitt viðkomandi aðila þjónustu eða selt aðgang að hugbúnaðarlausn sinni.
Upplýsingar um börn
Við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum um börn undir 13 ára aldri, eða lágmarksaldri í viðkomandi lögsögu. Ef við verðum þess áskynja að við höfum óvart safnað persónuupplýsingum um börn undir 13 ára aldri munum við gera ráðstafanir til að eyða upplýsingunum eins fljótt og auðið er, nema okkur sé skylt að geyma þær samkvæmt gildandi lögum.
Öryggi gagna og persónuupplýsinga
Tactica nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.
Tactica miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki eða í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga. Tactica er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi eða verktaki á vegum fyrirtækisins, og þá í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita viðskiptavinum þjónustu eða vöru sem viðskiptavinur hefur gert samkomulag um. Tactica afhendir vinnsluaðilum einungis þær persónuupplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að ná framangreindum tilgangi.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Tactica trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Tactica leigir aldrei eða selur persónulegar upplýsingar um viðskiptavini.
Tactica leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Tactica tryggir að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Tactica grípur til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til verndar persónuupplýsinga með sértöku tilliti til eðlis þeirra. Viðeigandi ráðstafanir eru til staðar til að tryggja að gögn sem okkur er treyst fyrir með skráningu þeirra, séu nægilega varin. Þessar ráðstafanir fela í sér, en takmarkast ekki við, dulkóðun, aðgangsstýringu, aðskilnaði hlutverka og innri endurskoðun.
Gögn viðskiptavina
Gagnavinnsla Tactica er staðsett hérlendis og hýst hjá innlendu gagnaveri, ásamt því að vera hýst erlendis í ákveðnum tilfellum. Þjónustuveitendur sem Tactica notar til vinnslu, þar sem persónuupplýsingar þínar koma fyrir, kunna að vera staðsettir í löndum innan og utan Evrópusambandsins (ESB) og Evrópska efnahagssvæðisins (EEA). Við tryggjum að þessir þjónustuveitendur vinna úr persónuupplýsingum í samræmi við löggjöf um persónuvernd (GDPR) og tryggja nægilegt gagnaverndarstig, jafnvel þótt persónuupplýsingar séu fluttar til lands utan EES sem er ekki með fullnægjandi gagnavernd samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB. Flutningur persónuupplýsinga til annarra viðtakenda er ekki gerð nema þar sem við erum skuldbundin til að gera það samkvæmt lögum. Til að fá nánari upplýsingar um viðeigandi varúðarráðstafanir varðandi alþjóðlega gagnaflutninginn eða afrit af þeim, vinsamlegast hafið samband við okkur í gegnum [email protected]
Varðveislutímabil
Persónuupplýsingar sem gefnar eru upp á vefsíðu okkar verða aðeins vistaðar þar til tilgangnum sem þær voru meðhöndlaðar fyrir hefur verið fullnægt. Að því marki sem varðveislutími er samkvæmt viðskiptalögum og skattalögum gæti varðveislutími fyrir tilteknar upplýsingar verið allt að 8 ár. Varðveislutímabil gæti einnig breyst vegna lögmætra hagsmuna okkar (t.d. til að tryggja öryggi gagna, að koma í veg fyrir misnotkun eða lögsækja vegna afbrota).
Það sem við höfum ekki stjórn á
Vefsíður þriðja aðila: Á vef okkar kunna að vera tenglar í og frá vefsíðum samstarfsaðila, auglýsenda og annarra þriðju aðila. Ef þú smellir á tengil í einhverja af þessum vefsíðum skaltu hafa í huga að um þær gilda aðrar persónuverndarreglur og að við tökum enga ábyrgð á viðkomandi reglum. Vinsamlegast kynntu þér þessar reglur áður en þú sendir persónuupplýsingar gegnum viðkomandi vefsíður.
Við munum nota vafrakökur (e. cookies) til að fylgjast með vafri þínu (e. browsing), t.d. hvaða síður voru skoðaðar. Hafir þú skráð þig hjá okkur mun tölvan þín geyma auðkennandi vafraköku sem sparar þér tíma, til dæmis með því að muna netfangið þitt fyrir þig. Þú getur breytt stillingum í vafranum þínum til að koma í veg fyrir að vafrakökur séu geymdar í tölvunni þinni án skýrs samþykkis þíns.
Lokaorð
Persónuverndarstefna Tactica er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Tactica áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Ný útgáfa skal auðkennd með útgáfudegi.