STYRKTARBEIÐNIR
Tactica er stoltur styrktaraðili ýmissa verkefna og fer styrktarnefnd okkar yfir allar umsóknir sem berast. Aðeins koma þær umsóknir til greina sem berast í gegnum formið hér að neðan á vefsíðunni. Beiðnir sem berast eftir öðrum leiðum verða ekki teknar fyrir.
Styrktarnefnd hittist einu sinni í mánuði og fer yfir umsóknir. Við höfum skýra stefnu í styrktarmálum, en tökum öllum umsóknum með opnum huga. Samþykktum umsóknum verður svarað en hafi svar ekki borist við umsókn innan 5 vikna má líta svo á að umsókninni hafi verið hafnað. Við hvetjum umsækjendur til þess að sækja um styrk með góðum fyrirvara.
Ekki eru veittar frekari upplýsingar um stöðu innsendra umsókna en segir hér að ofan.