Hér á eftir fara almennir skilmálar um viðskipta- og samningskjör Tactica ehf., kt. 650400-2160, hér eftir nefnt TACTICA. TACTICA áskilur sér einhliða rétt til að breyta viðskiptaskilmálum þessum og munu breytingar verða tilkynntar með 30 daga fyrirvara til viðskiptavina TACTICA.

1. Skilgreiningar

Áskriftarþjónustur er samheiti fyrir þjónustur sem viðskiptavinur kaupir frá TACTICA og greiðir fyrirfram ákveðið mánaðargjald fyrir þessar þjónustur.

Búnaður er samheiti fyrir hvers kyns vél- og hugbúnað.

Framleiðandi er hver sá aðili sem framleiðir vörur sem TACTICA hefur til endursölu.

Hugbúnaður er samheiti yfir hvers konar setningar, skipanir og forrit í véllesanlegu eða prentuðu formi sem lúta að notkun gagnavinnslukerfa auk tilheyrandi skjölunar s.s. tæknilýsinga, handbóka, kennsluefnis og leiðbeininga.

Leyfisgjald er gjald fyrir nytjaleyfi til notkunar á tilteknum hugbúnaði.

Nytjaleyfi er leyfi til notkunar á tilteknum hugbúnaði í samræmi við skilmála samnings.

Rétthafi er skráður kaupandi, og greiðandi af þjónustu eða hugbúnaði TACTICA

Samningur er samheiti fyrir hvers konar samning sem gerður er á milli TACTICA og viðskiptavinar.

Samningsaðili/ar eru TACTICA og viðskiptavinur/ir TACTICA

Samningsviðaukar eru viðaukar gerðir við einstaka samninga.

Sértækir viðskiptaskilmálar eru viðskiptaskilmálar um einstakar vörur eða þjónustur í boði hjá TACTICA.

Uppfærslugjald er verð fyrir rétt til uppfærslna á hugbúnaði samkvæmt nánar tilgreindum skilyrðum samnings.

Uppfærsluréttur þýðir leyfi til að nota uppfærslur og nýjar útgáfur af hugbúnaði í samræmi við skilmála samnings.

Vara er samheiti fyrir hvers kyns hugbúnað eða aðra vörutegund sem TACTICA selur.

Verkkaupi er samheiti fyrir þann einstakling eða fyrirtæki sem kaupir þjónustu, ráðgjöf, eða búnað af TACTICA.

Viðskiptaskilmálar er samheiti fyrir almenna og sértæka viðskiptaskilmála TACTICA.

Þjónusta getur verið af hvaða tagi sem er og veitt af TACTICA til viðskiptavinar á grundvelli samnings á milli aðila.

Þjónustugjald er gjald fyrir þjónustu sem veitt er samkvæmt sérstökum þjónustusamningi.

2. Gildissvið

Undir viðskiptaskilmála þessa falla öll viðskipti og samningar TACTICA, þar á meðal tilboð við þriðja aðila um kaup á vöru og þjónustu, nema um annað sé samið með skriflegum hætti. 

Sértækir viðskiptaskilmálar á tilteknum sviðum geta einnig átt við um viðskipti og samninga TACTICA við þriðja aðila um kaup á vöru og þjónustu. Viðskiptaskilmálarnir eru ófrávíkjanlegir og gilda um öll þau atriði sem fram í þeim koma, nema sérstaklega sé um þau samið með skriflegum hætti. Skulu allar breytingar á samningsskjölum vera skriflegar og undirritaðar, eða samþykktar í gegnum tölvupóst sem sannarlega er sendur af aðila með umboð til að samþykkja fyrir hönd viðskiptavinar.

Frávik frá viðskiptaskilmálunum teljast ekki samþykkt af hálfu TACTICA fyrr en undirritað samþykki TACTICA liggur fyrir, eða tölvupóstur frá framkvæmdastjóra TACTICA samþykkir frávikið.

Um kaup einstaklinga utan atvinnurekstrar á hvers kyns vöru og/eða þjónustu gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000, ef ákvæði þeirra laga eru slíkum aðilum hagstæðari en þessir viðskiptaskilmálar kveða á um.

Kaup á hvers kyns vöru eru almennt háð lögum um lausafjárkaup nr.50/2000, þar sem ákvæðum þessara skilmála, samningi eða viðskiptavenju milli aðila sleppir.

3. Samningur

Samningur telst kominn á þegar samningur, samningsviðauki eða eftir atvikum tilboð hefur verið undirritað(ur), eða samþykkt(ur) skriflega af báðum aðilum með öðrum hætti, til dæmis með samþykki á tilboði í tölvupósti.

3.1 Gildistími tilboðs

TACTICA ákveður gildistíma tilboðs og telst ekki bundið af tilboði hafi það ekki verið samþykkt af viðskiptavini með formlegum hætti (þar á meðal með samþykki í tölvupósti) innan gildistíma þess.

3.2 Gildistími samninga

Ef ekki er kveðið á um gildistíma samnings í samningi á milli aðila, skal samningur gilda í 12 mánuði og vera óuppsegjanlegur á þeim tíma. Að þeim tíma liðnum skal samningur framlengjast um ár í senn, en vera uppsegjanlegur hvenær sem er á þeim tíma í samræmi við ákvæði 3.3 í þessum skilmálum.

3.3 Uppsagnarfrestur

Ef ekki er kveðið á um uppsagnarfrest samninga í samningi á milli aðila, skal uppsagnarfrestur samnings vera 3 mánuðir. Uppsögn tekur gildi um mánaðarmót eftir að hún berst og byrjar þá uppsagnarfrestur að líða. Uppsögn skal vera skrifleg á bréfi eða í tölvupósti og afhent með sannanlegum hætti.

3.4 Misræmi í skilmálum

Ákvæði sértækra viðskiptaskilmála, samninga og samþykktra tilboða skulu ganga framar almennum viðskiptaskilmálum þessum.

4. Greiðsluskilmálar

4.1 Gjaldskrá

TACTICA birtir opinberlega gjaldskrá fyrir þjónustu á hverjum tíma. Rétthafi getur nálgast gjaldskrána á skrifstofu TACTICA eða óskað eftir að fá hana senda í tölvupósti. TACTICA getur breytt gjaldskrá fyrir áskrift að þjónustum og/eða öðrum áskriftarskilmálum með eins mánaða fyrirvara. Slíkt er tilkynnt á heimasíðu TACTICA.

4.2 Greiðslur og ábyrgð

Skráður rétthafi ber ábyrgð á greiðslum til TACTICA vegna notkunar sem á sér stað. Öllum fyrirspurnum er varðar reikningamál er svarað í síma 546 6000 en slíkar fyrirspurnir má einnig senda á [email protected]. Vörur og/eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega. Annar greiðslumáti en samkvæmt greiðsluseðlum eða reikningi telst ófullnægjandi. Hafi verið samið um annan greiðslumáta en staðgreiðslu eða greiðslu með greiðslukorti skal TACTICA senda út reikning fyrir selda vöru og/eða þjónustu. Reikningar frá TACTICA skulu vera sundurliðaðir og eftir atvikum studdir fylgiskjölum til þess að unnt sé að sannreyna þá.

4.3 Gjalddagi

Gjalddagi þjónustu er fyrsti dagur hvers mánaðar.

4.4 Eindagi

Eindagi reiknings er allt að 20 dögum eftir gjalddaga. Sé reikningur greiddur eftir eindaga, ber viðskiptavin að greiða dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags auk kostnaðar við innheimtu. Hafi greiðsla ekki borist 31 degi eftir eindaga áskilur TACTICA sér rétt til að loka fyrir alla þjónustu.

Kerfi TACTICA framkvæmir sjálfkrafa lokanir á þjónustu(m) ef tveir reikningar eða fleiri eru fallnir á eindaga. 

Áskriftarþjónustur (t.d. Integrator tengingar, hýsingar, Google Workspace, Office 365, og fleira) mynda stofn til innheimtu þar til óskað hefur verið eftir að loka á þjónusturnar og eyða gögnum eða þar til annar þjónustuaðili tekur við áskriftarþjónustunum. 

4.5 Athugasemdir

Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur.

4.7 Vanskil

Hafi vanskil viðskiptavinar varað í a.m.k. 90 daga frá eindaga áskilur TACTICA sér rétt til að tilkynna nafn viðskiptavinar á vanskilaskrá Creditinfo Ísland (Lánstraust).

Hafi viðskiptavinur ekki greitt fyrir áskriftarþjónustur í a.m.k. 90 daga er TACTICA leyfilegt að eyða öllum gögnum er tengjast áskriftarþjónustunni og segja upp öllum þjónustum er tengjast viðskiptavininum. 

Áskriftarþjónustur með 6 mánuði af þjónustum ógreidda er lokað og öllum gögnum eytt nema um annað sé samið.

4.8 Kreditkorta greiðslur 

Athugið að greiðslukostnaður getur bæst við ef ekki er greitt með kreditkorti. Greiðslukostnaðurinn getur tekið breytingum en er aldrei lægri en 150 kr. ef sent er í heimabanka. Engir greiðsluseðlar eru sendir út á pappír.

5. Aukaverk

Aukaverk teljast öll verk sem ekki falla innan samnings. Slík verk eru háð sérstöku samkomulagi á milli aðila og eru reikningsfærð sérstaklega samkvæmt tímagjaldi. Fyrir slíka vinnu skal greitt samkvæmt gjaldskrá TACTICA eins og hún er á hverjum tíma, nema um annað hafi verið samið í samningi eða í tölvupósti. Ef nauðsynlegt er skal TACTICA vera heimilt að grípa til aðgerða til varnar tjóni fyrir viðskiptavin án samþykkis hans og skal farið með slíkar aðgerðir sem aukaverk. Óski viðskiptavinur eftir úttekt á þeim kerfum sem TACTICA hefur í rekstri, verkefnum sem TACTICA vinnur eða þjónustu sem TACTICA veitir skal greitt fyrir slíka vinnu samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni. 

Lágmarkseiningar aukaverka:

Fyrir aðstoð í gegnum síma er lágmarkseining 30 mínútur, eftir það er innheimt fyrir hverjar byrjaðar 30 mínútur nema samningur segi til um annað. 

Ef starfsmaður TACTICA er fenginn á stað viðskiptavinar er lágmarks eining 2 klst, innan höfuðborgarsvæðis, eftir það er innheimt fyrir hverjar byrjaðar 30 mínútur nema samningur segi til um annað.

6. Þjónusta

6.1 Rekstur tölvukerfa

TACTICA veitir alla almenna upplýsingatækniþjónustu sem er unnin eftir tímagjaldi, nema annað sé tilgreint í samning á milli TACTICA og kaupanda.Við almenna upplýsingatækniþjónustu vinnur TACTICA oft á tíðum eftir svokölluðum “best practice” leiðum, en þá eru tekin ákveðin skref til lausnar vandamála viðskiptavina okkar þar sem vandamálin geta verið margskonar. TACTICA tekur enga ábyrgð á hve lengi viðgerð þeirra heldur búnaðinum í því horfi sem TACTICA skilar búnaðinum til eiganda í. Einnig tekur TACTICA enga ábyrgð á áætluðum tíma í hverskonar viðgerðir á búnaði eða kerfum, þar sem tímaáætlanir þjóna aðeins sem viðmið á því hvað þarf að gera til að laga búnaðinn og eru oft unnin á fyrstu skrefum greiningar vandamáls búnaðarins. Við gerð viðgerðaráætlana, bæði hvað tíma og kostnað varðar, nýtir TACTICA sérþekkingu sína og styðst við margra ára reynslu í viðgerðum og rekstri tölvubúnaðar, og eru allar áætlanir unnar eftir bestu vitund á hverjum tíma. Allar viðgerðir eru unnar á sem skemmstum tíma og mögulegt er og ef önnur vandamál koma í ljós, sem áætla má að muni leiða til þess að viðgerð verði veigameiri og kostnaðarsamari en álitið var í byrjun, kappkostar TACTICA að hafa samband við eiganda búnaðar til að láta vita og fá leyfi til að laga búnaðinn svo best megi vera.

6.1.1 Þjónustusamingar / Alrekstrarsamningar

Þjónustusamningar þar sem TACTICA selur þjónustu til verkkaupa sem felur í sér að sjá alfarið um rekstur útstöðva (tölvur eða prentarar) ná einvörðungu til beinnar vinnu og viðhalds á tölvubúnaði og prenturum. Uppsetningar á nýjum útstöðvum (tölvum), nýjum prenturum, flóknari jaðartækjum og fleiru er ekki innfalið í þjónustusamningnum þar sem það er utan eðlilegs reksturs á tölvu. 

Öll önnur vinna, til dæmis við lagfæringar á internet tengingum, breytingum á innanhússnetkerfi, flutning á skrifstofu, fellur utan þjónustusamnings og er unnin skv. tímagjaldi. 

  • Þjónusta við sérhæfðan hugbúnað er ekki innifalin, t.d. bókhaldskerfi, myndvinnslukerfi, tækniteikningakerfi og fleira þessháttar, þar sem sérhæfðrar þekkingar rekstraraðila þessara kerfa er þörf. 
    • Óski viðskiptavinur eftir aðstoð við að setja upp þessi kerfi fyrir sína hönd er farið með það sem aukaverk skv. 5.gr þessara skilmála og unnið samkvæmt tímagjaldi. 
  • Gerð er krafa um að útstöðvar séu í stakk búnar til að höndla það sem mætti kalla eðlilegt álag á hverjum tíma.

6.1.2 Fjartengingar

TACTICA getur fjartengst útstöð án þess að viðskiptavinur eða sannreyndur starfsmaður viðskiptavinar stofni til fjartengingar til þess eins að lagfæra eða vinna fyrir hönd viðskiptavinar á tiltekinni útstöð hverju sinni. Undantekningalaust verður viðskiptavinurinn eða sannreyndur starfsmaður viðskiptavinar að veita samþykki fyrir því að TACTICA fjartengist útstöðinni, annað hvort í gegnum síma, email eða netspjall. TACTICA er með öllu óheimilt að fjartengjast útstöðvum án beiðni eða samþykkis viðskiptavinar eða sannreyndum starfsmönnum viðskiptavinar.

6.1.2 Afritun

6.1.2.1 Afritun

TACTICA sinnir afritun á gögnum fyrir viðskiptavini, og skal þá liggja til grundvallar listi af öllum þeim gögnum sem skal afrita þegar óskað er eftir að TACTICA setji upp afritunarþjónustu fyrir viðskiptavin. 

Breytingar eða viðbætur á gögnum sem skal afrita skal tilkynna TACTICA í gegnum tölvupóst. Breyting á lista þeim sem liggur til grundvallar afritunar gagna telst ekki staðfest fyrr en TACTICA hefur formlega staðfest við viðskiptavin að uppfærður listi gagna í afritun sé uppfærður í samræmi við óskir viðskiptavinar. 

TACTICA ber enga ábyrgð ef uppfærður listi gagna hefur ekki verið sannarlega staðfestur af hálfu TACTICA og gögn tapast sem voru ekki á staðfestum lista gagna í afritun hverju sinni. 

Ef viðskiptavinur hefur ekki fengið staðfestingu innan tveggja vinnudaga ber honum að hafa samband við TACTICA símleiðis til að fylgja eftir beiðni og fá staðfest að TACTICA hafi borist beiðnin.

6.1.2.2 Vöktun TACTICA

TACTICA býður upp á vöktun á afritun viðskiptavina sinna og staðfestir þá TACTICA á hverjum sólarhring hvort afritunin hafi tekist. Fyrir vöktunarþjónustu er greitt mánaðargjald í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni. Ef afritun gagna tekst ekki af einhverjum ástæðum, lætur TACTICA viðskiptavin strax vita svo hægt sé að taka viðeigandi ráðstafanir. TACTICA ber enga ábyrgð á því ef afritun gagna tekst ekki, eða stoppar af ástæðum sem má rekja til breytinga viðskiptavinar á þeim gögnum sem liggja til grundvallar afritunar. 

Viðskiptavinur getur keypt alla þjónustu frá TACTICA sem þarf til að tryggja að afritunin komist aftur í lag og sé í samræmi við óskir viðskiptavinar. Öll vinna við lagfæringar á afritun gagna viðskiptavinar, eða bilanagreining og lagfæring á afritun sem hefur mistekist, flokkast sem aukaverk og er unnin í samræmi við gr. 5 í skilmálum þessum, nema um annað sé samið.

6.1.2.3 Vöktun viðskiptavinar

Viðskiptavinur getur séð um vöktun á sinni afritun. Viðskiptavinur ber þá fulla ábyrgð á því að fylgjast með hvort afritun heppnist hverju sinni og er frjálst að hafa samband við TACTICA ef þarf aðstoð. TACTICA ber enga ábyrgð á því ef afritun gagna tekst ekki, eða stoppar af ástæðum sem má rekja til breytinga viðskiptavinar á þeim gögnum sem liggja til grundvallar afritunar. TACTICA ber enga ábyrgð á því ef viðskiptavinur hefur ekki vitneskju um að afritun hafi misheppnast í fortíð og þarf að sækja afrit sem er eldra en viðskiptavinur bjóst við að geta sótt. Öll vinna við lagfæringar á afritun gagna viðskiptavinar, eða bilanagreining og lagfæring á afritun sem hefur mistekist, flokkast sem aukaverk og er unnin í samræmi við gr. 5 í skilmálum þessum, nema um annað sé samið.

6.2 Hýsingarþjónusta

6.2.1 Ábyrgð og aðgerðir

Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að gögn sem TACTICA hýsir fyrir viðskiptavin brjóti ekki gegn ákvæðum þessara skilmála, lögum, eða réttindum annarra. Komi til slíkra brota getur TACTICA gripið til aðgerða sem heimilaðar eru lögum samkvæmt eins og t.d. að fjarlægja eða hindra aðgang að gögnum sbr. 14. gr. laga nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. 

6.2.2 Óheimilar aðgerðir

Það er með öllu óheimilt að nota, hvetja til, auglýsa, hafa milligöngu um eða leiðbeina öðrum að nota þjónustuna í hvers kyns ólögmætum, skaðlegum tilgangi eða tilgangi sem brýtur gegn almennu velsæmi. Þá er óheimilt að miðla, vista eða varðveita, sýna, dreifa eða með einhverjum öðrum hætti gera aðgengilegt efni sem er ólöglegt, skaðlegt, eða brýtur gegn almennu velsæmi eða réttindum annarra. 

Eftirfarandi aðgerðir eru með öllu óheimilar: 

Að trufla notkun annarra notenda sem nýta sér þjónustuna, gera eitthvað sem veldur óeðlilega miklu álagi á þjónustuna og tölvukerfið eða truflar eðlilegt aðgengi annarra notenda að þjónustunni; 

Að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina með hvers kyns aðferðum, þar á meðal en ekki takmarkað við aðgerðir eins og óumbeðin fjöldadreifing á upplýsingum, hvers konar netárásir, vefskrið (e. crawling) og skönnun þjóna og netumhverfa, dreifingu og notkun sjálfvirks hugbúnaðar, forrita eða annars konar sjálfvirkra aðferða (s.s. spilliforrita eða veiru) í þeim tilgangi að fá óheimilan aðgang að umhverfi TACTICA eða viðskiptavina TACTICA; 

Að villa á sér heimildir í samskiptum, hvort sem um er að ræða tölvupóstsamskipti eða annars konar samskiptum; 

Að reyna á nokkurn hátt að sækja, birta eða greina (e. reverse engineering) á annan hátt undirliggjandi forritskóða (e. source code) út frá þeim hugbúnaði sem notaður er í kerfum TACTICA. Ef notandi fær að öðrum ástæðum aðgang að undirliggjandi forritunarkóða, s.s. vegna bilunar þá ber honum að tilkynna slíkt án tafar á netfangið [email protected]

Að trufla, skerða eða á nokkurn hátt nýta þjónustuna með þeim hætti að slík notkun hafi skaðleg áhrif á TACTICA, viðskiptahagsmuni TACTICA, umhverfi TACTICA, búnað og kerfi TACTICA, eða truflar kerfisrekstur TACTICA og eftir atvikum viðskiptavina félagsins.

Fari umferð á vefsvæði yfir það sem eðlilegt getur talist, að mati sérfræðinga TACTICA, skal endurskoða lausnina sem notast er við og viðeigandi þjónustupakki settur upp.

6.2.2 Vélbúnaður

Hýsingarþjónusta TACTICA, undir auglýstum merkjum vefsíðunnar www.hysingar.is, hýsir rafræn gögn viðskiptavina TACTICA á vélbúnaði Advania, staðsettum í THOR Data center. TACTICA ber enga ábyrgð á bilunum í vélbúnaði THOR Data center.

6.3 Vinnutímar

Vinnutími TACTICA er á virkum dögum á milli 09:00 og 17:00. Ekki er unnið á stórhátíðardögum nema sé sérstaklega óskað eftir því og í neyðartilvikum. 

Utan vinnutíma á virkum dögum er um útkall að ræða og eining því 4 klst. nema um annað hafi verið samið milli aðila.

7. Hugbúnaður

7.1 Nýting hugbúnaðar

Við sölu á hugbúnaði til viðskiptavinar felst einungis sala á réttinum til notkunar á hugbúnaðinum en ekki eignaréttur á hugbúnaðinum. Viðskiptavinum er með öllu óheimilt að framselja hugbúnað TACTICA með nokkrum hætti, afrita hugbúnaðinn, leyfa fleiri notendum afnot af hugbúnaðinum en samningur kveður á um, breyta eða fela öðrum að breyta hugbúnaðinum, brjóta niður hugbúnaðinn (e. reverse engineering of software), fjarlægja forrit úr hugbúnaðinum eða taka hann í sundur nema lög heimili annað, eða TACTICA veiti skriflegt samþykki sitt fyrir slíku.

7.2 Nytjaleyfi

Með samningi um kaup á nytjaleyfi veitir TACTICA viðskiptavini leyfi til að nýta hugbúnað fyrir tilgreindan fjölda notenda í tiltekinn tíma, fyrir tiltekna tegund/fjölda af vélbúnaði, og er viðskiptavinum einungis heimilt að nota hugbúnaðinn á þeim vélbúnaði og í þeim mæli sem kveðið er á um í samningi á milli aðila. Viðskiptavinir greiða leyfisgjald vegna nytjaleyfa er byggir á þeim réttindum eða þjónustuþáttum sem tilgreindir eru í samningi, þ.m.t. uppfærslugjald og gjald fyrir uppsetningu búnaðar. Leyfisgjöld eru háð breytingum í samræmi við gjaldskrá hverju sinni, nema um annað sé samið á milli aðila.

7.3 Hugverkaréttur

Í þeim tilvikum þar sem TACTICA selur eigin hugbúnað er TACTICA eigandi og einkaréttarhafi að höfundarrétti og hvers kyns öðrum réttindum á sviði hugverka- og auðkennaréttar, hvort sem um er að ræða vörumerkjarétt, hönnunarrétt, einkaleyfisrétt, eignarrétt að atvinnuleyndarmálum, sérþekkingu (e. know-how) eða önnur réttindi, hvaða nafni sem þau kunna að nefnast er lúta að hugbúnaðinum. Sama gildir um allar síðari viðbætur við hugbúnaðinn sem TACTICA leggur til eða öðlast með framsali.

Hugbúnaður og leyfisforrit frá öðrum en TACTICA er selt á forsendum framleiðandans eða eiganda réttindanna. Yfirleitt er um að ræða sölu á einkaleyfisbundnum, óframseljanlegum réttindum til notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttindin til að nota hann.

TACTICA er heimilt að endurnota allar hugmyndir, hugverk, sérþekkingu og aðferðir sem stafa af þeirri þjónustu sem innt er af hendi og verkefnaviðaukum hans sem TACTICA hefur þróað eða útbúið í samvinnu við viðskiptavin. TACTICA staðfestir og ábyrgist að félagið sé og verði réttur eigandi og/eða leyfishafi að þeim þáttum kerfis og einstökum hlutum þess sem TACTICA veitir viðskiptavini afnotarétt (nytjaleyfi) að, sem og gagnvart hugverkaréttindum og skyldum réttindum þriðja aðila að þeim búnaði og gögnum sem kerfið geymir hverju sinni, þ.m.t. hugbúnaði og trúnaðarupplýsingum, sem nú eða síðar kunna að tengjast kerfinu.

Hugbúnað í eigu TACTICA er óheimilt að endurleigja eða lána til þriðja aðila með eða án endurgjalds.

7.4 Integrator

Hugbúnaður nefndur Integrator (www.integrator.is) er eign TACTICA og er það sem kallast SaaS lausn (Software as a service). SaaS lausnir ganga út á að þjónustuaðilinn (í þessu tilviki TACTICA) á og hýsir forrit sem gert er aðgengilegt viðskiptavin yfir internetið. Forritið er ekki sett upp á hverri útstöð fyrir sig hjá viðskiptavin, heldur er keyptur aðgangur að forritinu sem er sett upp fyrir viðskiptavin svo hægt sé að fá aðgang að því með notendanafni og lykilorði.

Integrator tengir mismunandi kerfi (bókhaldskerfi, myndabanka, vefverslanir, gagnagrunna og fleira) saman í miðlægt viðmót og safnar þar saman vöru- og gagnaupplýsingum, til birtingar á einum stað fyrir viðskiptavininn. Integrator getur sent þessar upplýsingar í önnur kerfi (t.d. vefverslun, þjónustusíður eða önnur kerfi). 

Viðskiptavinur eða starfsmaður hans, með notendanafn og lykilorð, getur skráð sig inn í Integrator til að fá aðgang að gögnunum sem safnað hefur verið saman fyrir viðskiptavininn og unnið í þeim, breytt og bætt við upplýsingarnar upp að því marki sem viðskiptavinur hefur ákveðið að hægt sé að gera.

Viðskiptavinur ber alla ábyrgð á að upplýsa TACTICA þegar starfsmenn ljúka störfum og/eða skulu ekki hafa aðgang að Integrator. TACTICA ábyrgist ekki á neinn hátt ef starfsmaður viðskiptavinar vinnur ólöglegt eða ósæmilegt verk, s.s. að dreifa innherjaupplýsingum sem gætu verið til staðar í Integrator, á meðan starfsmaður hefur aðgang að Integrator. 

Aðgangur starfsmanns viðskiptavinar telst ekki lokaður fyrr en skrifleg staðfesting hefur borist frá TACTICA þess efnis að aðgangi viðkomandi starfsmanns hefur verið lokað.

Viðskiptavinur ber alla ábyrgð á að hafa samband við TACTICA símleiðis ef ekki hefur fengist staðfesting á lokun aðgangs starfsmanns innan tveggja vinnudaga frá skriflegri beiðni viðskiptavinar.

Ef óskað er eftir að TACTICA fari yfir Integrator viðskiptavinar til að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi ekki átt við gögn viðskiptavinar á ólöglegan eða ósæmilegan máta samkvæmt lagalegri skilgreiningu eða skilgreiningu viðskiptavinar, skal fara með þá vinnu sem aukaverk sbr. 5.gr. í skilmálum þessum.

TACTICA er frjálst að selja aðgang að Integrator hugbúnaðinum til hvers sem óskar eftir að kaupa aðgang að Integrator. Þróun hugbúnaðarins er stöðug til að sinna betur þörfum viðskiptavina og nýtir TACTICA þar á meðal ábendingar frá núverandi viðskiptavinum. Viðskiptavinur skal ekki á neinn hátt haft áhrif á sölu á aðgangi að Integrator lausninni til annars viðskiptavinar TACTICA, enda alls óviðkomandi um aðra er kjósa að nota Integrator til að sameina og vinna með vöruupplýsingar sínar.

Viðskiptavinur kaupir einungis aðgang að hugbúnaðinum Integrator og fær enga vitneskju eða upplýsingar um virkni, verð, eða aðrar upplýsingar er varða aðra viðskiptavini TACTICA sem TACTICA getur nálgast í gegnum hugbúnaðinn. TACTICA er með öllu óheimilt að dreifa upplýsingum um viðskiptavini eða þeirra þjónustu sem er geymd innan hugbúnaðarins Integrator til þriðja aðila. Ítarlegri upplýsingar um skyldur og þjónustu TACTICA er varða Integrator eru tilgreindar í nytjaleyfissamningum Integrator við viðskiptavini hverju sinni.

8. Aðgangs- og Lykilorð

Öll ábyrgð á því að passa upp á aðgangsorð og lykilorð liggur hjá viðskiptavin. Ef aðgangs- eða lykilorð glatast og viðskiptavinur óskar eftir aðstoð TACTICA við að ná aðgangi að vefsíðum, tölvubúnaði eða öðrum búnaði, skal fara með þá vinnu sem aukaverk sbr. 5.gr.í skilmálum þessum.  

Viðskiptavinur ber alla ábyrgð á að veita TACTICA upplýsingar um hvaða aðilar og tölvupóstföng mega óska eftir breytingum eða lokunum á þjónustum ásamt því að halda TACTICA upplýstum þegar breytingar verða á þeim starfsmönnum sem eru í samskiptum við TACTICA fyrir hönd lögaðila.

Sá er stofnar til viðskipta við TACTICA telst vera aðili með fullt vald til að óska eftir breytingum eða lokunum á þjónustuleiðum viðskiptavinar hjá TACTICA séu ekki aðrir tilnefndir með skriflegum hætti í gegnum tölvupóst.

Óskir um lokun á aðgangi eiganda eða meðeiganda í kjölfar breytinga á eignarhaldi lögaðila ber að staðfesta með afhendingu á fyrirtækjavottorði eða öðru viðurkenndu skjali til að sýna fram á breytt eignarhald lögaðilans. 

Eigendur eða meðeigendur sem óska eftir að loka á reikninga annarra meðeigenda ber að upplýsa TACTICA að um lokun á aðgangi eiganda/meðeiganda sé að ræða og senda með beiðninni afrit af gildu fyrirtækjavottorði eða öðru skjali sem færir sönnur á eignarhald á þeim tíma. Annars ber sá er óskar eftir lokuninni fulla ábyrgð á beiðninni.

Lögaðilinn einn ber ábyrgð á því að senda fyrirtækjavottorð með þegar óskað er eftir lokun á þjónustum fyrrum eigenda lögaðila þar sem TACTICA heldur ekki skrá um eigendur fyrirtækja hverju sinni.

Lögaðili skal ávallt halda TACTICA óábyrgum fyrir öllum afleiðingum sem lokanir eða breytingar á þjónustu fyrir starfsfólk eða meðeigendur getur haft í för með sér, eftir að beiðni um lokanir eða breytingar hefur borist frá réttmætum aðilum og í samræmi við skilmála þessa.

Óskir um lokun eða breytingu á aðgangi lykilstarfsmanns eða tæknilegs notanda hjá lögaðila skal berast frá næsta yfirmanni starfsmannsins eða annars sem hefur stjórnunarvald gagnvart starfsmanninum.

9. Upplýsingaöryggi og persónuvernd

9.1 Staðlar upplýsingaöryggis

Að því marki sem mælt er fyrir um að í samningi aðila getur TACTICA unnið eftir skjalfestum reglum verkkaupa er varða upplýsingaöryggi, séu þær kröfur strangari en staðallinn sem TACTICA vinnur eftir hverju sinni. Það sama skal eiga við um kröfur um upplýsingaöryggi sem lög eða þar til bær stjórnvöld kunna að gera til starfsemi verkkaupa og verktaka á hans vegum.

9.2 Gagnaver

TACTICA hýsir öll sín kerfi í ISO vottuðum gagnaverum bæði hérlendis og erlendis.

9.3 Öryggisreglur

Verkkaupi skuldbindur sig til að virða þær öryggisreglur TACTICA sem Verkkaupi er upplýstur um.

9.4 Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga

Verkkaupi telst ábyrgðaraðili í skilningi laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, með síðari áorðnum breytingum, að því er varðar hvers konar efni sem afritað er í samræmi við samning þennan og áðurnefnd lög ná yfir, enda leiði ekki annan skilning af lögunum. Sömuleiðis telst TACTICA vera vinnsluaðili skv. sömu lögum vegna vinnslu á efni Verkkaupa skv. samningnum.

9.5 Öryggisþættir

TACTICA skal veita verkkaupa rétt til að sannreyna öryggisþætti eins og gagna- og rekstraröryggi með úttektum á aðgengi, hýsingu og meðhöndlun gagna verkkaupa sem TACTICA kann að vera falið að sjá um samkvæmt samningi aðila. Slík úttekt skal þó ekki gerð oftar en einu sinni á ári og ber verkkaupa að tilkynna TACTICA það með hæfilegum fyrirvara og skal slíkt gert í samráði við TACTICA.

9.6 Persónulegar upplýsingar

Í þeim tilfellum þar sem persónulegar upplýsingar eru skráðar t.d. vegna starfsumsókna, pantana eða beiðna um frekari upplýsingagjöf, þar sem viðskiptavinur þarf að skrá nafn sitt, heimilisfang, tölvupóstfang eða aðrar persónutengdar upplýsingar, skuldbindur TACTICA sig til þess að fara að lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og ekki miðla á nokkurn hátt upplýsingum sem skráðar hafa verið í ofangreindum tilgangi til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar. TACTICA skal gæta fyllsta trúnaðar varðandi gögn og málefni sem því verður kunnugt um viðskiptavin og skjólstæðinga hans. Samningur á milli aðila er trúnaðarmál og skal því aðeins dreift til þeirra sem hafa með framkvæmd hans að gera og aðeins að því marki sem nauðsynlegt er. Starfsmenn TACTICA undirrita heit um trúnaðarskyldu um allt það er varðar hagi viðskiptavina TACTICA sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum viðskiptavinar eða eðli máls. Helst trúnaðarskylda eftir að samningi er lokið.

9.7 Trúnaðarskylda

Viðskiptavinur er bundinn trúnaðarskyldu um málefni TACTICA sem hann fær vitneskju um vegna framkvæmdar samnings og helst trúnaðarskylda eftir að samningi er lokið. TACTICA kann að vera skylt samkvæmt lögum eða dómsúrskurði að verða við kröfu yfirvalda um afhendingu gagna viðskiptavina í hýsingu, afhendingu upplýsinga sem varða viðskiptasamband við viðskiptavin eða aðgang að vélbúnaði í hýsingu. Komi upp slíkt tilvik skal TACTICA án tafar upplýsa viðskiptavin um málið. Kostnaður sem fellur á TACTICA vegna aðgerða yfirvalda gagnvart viðskiptavinum telst vera aukaverk og greiðir viðskiptavinur fyrir slíka vinnu samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni og í samræmi við 5. gr. í skilmálum þessu.

10. Ábyrgðartakmarkanir

Almennar ábyrgðartakmarkanir

  • Bótaskylda viðskiptavinar innan samninga sem hafa verið gerðir við TACTICA takmarkast við beint tjón sem gagnaðili hefur orðið fyrir og gera má ráð fyrir að sé afleiðing af vanefnd viðskiptasamnings.
  • Bótaábyrgð innan samninga nær ekki til óbeins tjóns gagnaðila, þ.m.t. rekstrartaps, eða tjóns sökum þess að ekki hefur tekist að uppfylla samninga við þriðja aðila að hluta til eða að öllu leyti.
  • TACTICA ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til breytinga á veituspennu, rafmagnstruflana eða annarra utanaðkomandi áhrifa.
  • TACTICA ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða.
  • TACTICA ber ekki ábyrgð á tjóni sem viðskiptavinur eða þriðji aðili á vegum viðskiptavinar verður valdur að án meðábyrgðar TACTICA.
  • Ef samningsaðili getur ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningnum vegna neyðarréttarlegra, óviðráðanlegra atvika falla skuldbindingar hans, þ.m.t. möguleg bótaábyrgð, niður á meðan slíkt ástand varir.
  • TACTICA ber ekki ábyrgð á tilvikum þar sem starfsmaður lögaðila villir á sér heimildum og/eða aðgangsheimildum til að fá aðgang að kerfum eða þjónustu, ef í ljósi viðskiptasögu og samskipta megi áætla að óskir þessa starfsmanns séu á engan hátt saknæmar.
  • Þegar viðskiptavinur færir þjónustur sínar til TACTICA frá öðrum þjónustuaðila ber TACTICA enga ábyrgð á því að viðskiptum við fráfarandi þjónustuaðila sé sagt upp, slíkt er alfarið í verkahring viðskiptavinar. TACTICA ber einungis ábyrgð á því að selda þjónustan sé innheimt frá upphafsdegi viðskipta.

Eftirfarandi takmarkanir á ábyrgð TACTICA gilda vegna notkunar á Integrator, SaaS lausn verksala, hér eftir nefnd varan.

  • Notkun vörunnar í starfsemi viðskiptavinar sem kaupir uppsetningu vörunnar af TACTICA er alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.
  • Ábyrgð TACTICA á vörunni á ekki við í þeim tilvikum þegar:
    • Villu í vörunni er að rekja til uppsetningar viðskiptavinar eða þriðja aðila á vörunni, öðrum WordPress viðbótum, öðrum WooCommerce viðbótum, sniðmáti, vélbúnaði, stýrikerfum, skráarkerfum, gagnagrunnum, öðrum tölvukerfum eða hugbúnaði frá þriðja aðila.
    • Villu í vörunni er að rekja til villu eða galla í hugbúnaði þriðja aðila og/eða vélbúnaði frá þriðja aðila.
    • Villu í vörunni er að rekja til þess að vörunni hafi, án heimildar TACTICA, verið breytt eða aðlagað (eða reynt að breyta eða aðlaga) af verkkaupa eða þriðja aðila.
    • Villu í vörunni er að rekja til þess að kerfið er notað á annan hátt en gert er ráð fyrir og TACTICA hefur sannanlega leiðbeint viðskiptavin um rétta notkun.
    • Villu í vörunni er að rekja til force majure, þ.e. til bilana í rafmagni, slysa, stríðsátaka, náttúruhamfara, deilna á vinnumarkaði, fyrirmæla stjórnvalda eða annarra óvæntra og ófyrirséðra atvika, sem TACTICA er ekki unnt að fyrirbyggja.
    • Finnist villa í vörunni og fyrrgreindar takmarkanir á ábyrgð vörunnar eru ekki fyrir hendi, skuldbindur TACTICA sig til að lagfæra villur í vörunni á sinn kostnað, á meðan þjónustusamningur er í gildi. Komi hins vegar í ljós við greiningu vandans hjá TACTICA að villa í tölvukerfi viðskiptavinar er ekki að rekja til kerfisins, heldur til hugbúnaðar eða vélbúnaðar þriðja aðila eða annarra utanaðkomandi þátta, þá skal kostnaður TACTICA við greiningu vandans og hugsanlegra lagfæringa, vera greiddur af viðskiptavin samkvæmt framlögðum reikningi þar sem fram koma unnir tímar og hvað var gert. 

11. Eignaréttur hugbúnaðar

  • Integrator SaaS lausn verksala er hugbúnaðarlausn sem þróuð er af TACTICA og er að öllu leyti í eigu TACTICA.
  • Notkun á Integrator í samræmi við samninga hefur ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfundarétti frá einum samningsaðila til annars, nema það sé kveðið á um það sérstaklega í samning milli TACTICA og viðskiptavinar.
  • Ef viðskiptavinur gerir sérstakt samkomulag í tengslum við framkvæmd samnings um endurbætur eða frekari þróun tæknilegra lausna eða annars, þar sem TACTICA á hugbúnað eða hugverk og réttindi tengd því, skal hin endurbætta eða þróaða lausn vera hluti af réttindum TACTICA, nema um annað sé samið.
  • TACTICA selur viðskiptavin aðgang að Integrator SaaS hugbúnaðarlausn til að tengja saman mismunandi kerfi viðskiptavinar og færa upplýsingar frá einu kerfi yfir í annað.
  • TACTICA er eini eigandi Integrator SaaS lausnarinnar og því frjálst að selja aðgang að henni, fólki og fyrirtækjum, án leyfis annara notenda Integrator hverju sinni. Aðrir notendur Integrator hafa engar leiðir til að öðlast vitneskju um upplýsingar annara notenda Integrator þar sem engar tengingar liggja á milli mismunandi vara viðskiptavina verkkaupa.

10. Trúnaður

Samningsaðilar skulu halda fullum trúnaði um málefni sem þeir fá upplýsingar um frá gagnaðila og ætla má vegna eðlis og/eða aðstæðna, að fara skuli með sem trúnaðarmál, og skal sá samningsaðili á engan hátt færa sér slíkar upplýsingar í nyt nema í samræmi við ákvæði samningsaðila á gildistíma hans, sbr. t.a.m. ákvæði laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, með áorðnum breytingum. Upplýsingar, sem eru eða ætla má að séu á allra vitorði eða öllum aðgengilegar, teljast ekki trúnaðarupplýsingar, nema slíkar aðstæður stafi af broti á þessu ákvæði.

Trúnaðarskylda starfsmanna samningsaðila skal haldast ótímabundið eftir að þeir hafa lokið störfum í þágu samningsaðila og eftir uppsögn eða riftun samnings aðila.

11. Varðveisla gagna og aðrar skyldur við lok samnings

TACTICA varðveitir ekki gögn viðskiptavinar eftir að gildistíma samninga er lokið eða honum hefur verið sagt upp af öðrum orsökum. Hvíli skylda á viðskiptavin að varðveita gögn á grundvelli ákvæða laga eða samninga, eins og t.d. varðveisla bókhaldsgagna á grundvelli laga um bókhald, sem TACTICA hefur haft til varðveislu skuldbindur viðskiptavinur sig til þess að varðveita sjálfur eintök af þeim gögnum, og óska eftir að fá þau afhent frá TACTICA. 

TACTICA ber ekki ábyrgð á að varðveita umrædd gögn fyrir hönd viðskiptavinar eftir samningslok. 

Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að óska eftir að fá öll gögn afhent við samningslok.

Við lok samnings skulu viðskiptavini afhent leyfi og forrit sem hann sannarlega átti við upphaf samningsins og önnur leyfi og forrit sem hann hefur keypt á þjónustutíma, nema um annað hafi verið samið. 

Öll vinna sem TACTICA sinnir vegna samningsloka er unnin sem aukaverk og skal fara með það í samræmi við 5.gr í skilmálum þessum. 

12. Riftun

Hvorum aðila um sig er heimilt að rifta samningi þessum ef um verulegar vanefndir er að ræða.

Riftunin skal vera skrifleg, rökstudd og send gagnaðila með sannanlegum hætti. Riftun skal

miðast við næstu mánaðamót eftir að riftunaryfirlýsing hefur verið send. Að öðru leyti gilda

almennar reglur kröfuréttarins.

13. Varnarþing

Ef upp koma mál vegna ágreinings um framkvæmd samnings þessa sem ekki er mögulegt að

leysa með samkomulagi beggja skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skilmálar Verksala eru birtir á vefsíðu hans, tactica.is.

Ef misræmi er á milli samnings og viðauka, gilda ákvæði samnings þessa.